Sunday, 25 November 2007

Sveitarferð og afmæli


Við vorum að heiman alla helgina og gistum hjá Karó. Við fórum í þrítugs afmæli til Önnu Rúnar á laugardaginn þar sem var boðið upp á kökur og kaffi. Það var ágætis tilbreyting að fara frá borginni og í Jyllinge sveitina hennar Karó. Dýrleif fór meira að segja með Karó og krökkunum í jólaföndur á elliheimilinu í dag þar sem var föndrað, drukkið smá jólaglögg og borðaðar danskar eplaskífur (eplaskífur tengjast eplum ekki neitt humm... fyndið, samt voða góðar). En ég Linda Björk nennti ómögulega með á þessa ellismella skemmtun og var bara heima í rólegheitum. Skelli inn mynd tekna í afmælinu af Önnu Rún og Ásdísi Grétu.

1 comment:

Anonymous said...

Hæ til hamingju með afmælið anna rún. Flott hjá þér dýrleif að fara með karó og krökkunum á elliheimilið í smá jólaföndur og fá jólastemninguna bein í æð og rifja upp gamlan fíling er þú varst að vinna á hrafnistu.hehe Linda mín þú er nú alltaf samið sauðurinn nenntir ekki að fara alltaf sami félagssssssflippin.hehe kveðja úr mosfellsbæ