jæja nú er orðið frekar langt síðan að við blogguðum. Það sem við höfum verið að gera er að vinna endalaust í þessu hópaverkefni sem við vorum í, en við kláruðum það á fimmtudaginn. þá er bara eftir að fara í prófið á sem er núna á fimmtudaginn. Dýrleifu var um daginn boðið í pólskt matarboð sem var víst mjög svona öðruvísi en samt bara skemmtilegt held ég. Talandi um mat þá bauð hópfélagi minn mér hafragraut, nema hann var ekki hitaður heldur borðuðum við hann með mjólk og smá sykri. þarf held ég varla að taka það fram að mér fannst hann ekki góður en þetta var kvöldið fyrir skil á verkefninu og við höfðum ekki tíma til að fara og fá okkur að borða og þetta var það eina í boði. Þannig var kvöldmaturinn minn þetta kvöld vá hvað ég er að skrifa spennandi og fróðlegar færslur..... ætti eiginlega bara að gerast rithöfundur :)
Svo ég tali nú meira um mat þá fórum við einhvern tímann um daginn út að borða ég (Linda),Dýrleif, Siggi meðleigjandi, Belinda og Jóna sem kom í heimsókn frá Noregi en hún er þar í landslagarkitektúr. En það var mjög gaman ég fékk mér lax sem var ágætur hefði nú mátt vera meira af laxi fékk eiginlega bara kartöflur held það hafi verið svona 10 litlar kartöflur og smá lax.
Hvað get ég talað um meira annað en um skólann og mat... humm jú veðrið það er orðið kalt hérna 6-7 stiga hiti stundum meira en það er orðið mjög kalt í íbúðinni. En sem betur fer erum við með heita ullarsokka að heiman sem halda á okkur hita, tánum að minnsta kosti. svo erum við duglegar að kveikja á kertum ( og mamma við pössum okkur ALLTAF á að slökkva á kertunum áður en við förum að sofa eða út).
Jæja ætli það sé ekki best að fara að lesa fyrir prófið
bæjó Linda Björk
Sunday, 28 October 2007
Thursday, 11 October 2007
Vetrarfrí
Nú erum við komnar í svokallað vetrarfrí. Við verðum samt ekki í miklu fríi þar sem við erum í stóru verkefni og þurfum að klára það í frívikunni. Það er mikið um veikindi í skólanum, annar hver maður er að snýta sér og hnerra. Við fáum okkur c vítamín og sólhatt á hverjum degi til að verjast þessarri pest. Vonandi tekst það því þetta er slæm tímasetning á veikindi.
Linda horfir mikið á náttúrulífs og dýraþætti í frítíma sínum og þá sérstaklega dýrasjúkrahúsþætti. Ég benti henni á að í skólanum okkar eru kenndar dýralækningar. Það er ekki víst að við förum í botany kúrsinn til Guatemala því það eru ekki nógu margir búnir að skrá sig. Við vonum það besta. Meðfylgjandi mynd er tekin í skógarferð í Drammen, Noregi. Við fórum þangað í námsferð um daginn.
Hef nú ekki mikið meira að segja... er á messenger, að skrifa blogg og vinna í verkefninu. Þarf að fara að einbeita mér að náminu eins og einhver mundi segja. :) Hafið það gott!
Wednesday, 10 October 2007
Tyggjóklessur og pípulagnir :)

jæja nú er kominn miðvikudagur vikan er fljót að líða. Erum á fullu að vinna í stóru hópaverkefni sem við eigum að skila eftir 2 vikur. Samvinnan í hópnum gengur stundum erfiðlega þar sem fólk er ekki alltaf sammála. Í hópnum mínum er dönsk stelpa og strákur frá Kamerún ( þarf eiginlega að kíkja á landakort til að vita hvar það er). Í hópnum hennar Dýrleifar er danskur strákur og stelpa fráPóllandi. Skrifa ekki um annað en skólann en það fer eiginlega allur okkar tími í hann. Svo ég tali nú um annað en skólann þá er Dýrleif að elda grjónagraut sem ég er spennt að fá að borða því í gær fékk ég bara jólasmákökur í kvöldmat já það styttist í jólin... Það er farið að kólna soldið hérna, erum samt ekki farnar að þurfa að nota kuldaúlpurnar strax en það fer að styttast í það, laufin eru allavega ekki fallin af trjánum ennþá. Svo ég haldi nú áfram að skrifa þá má ég til með að tala um íbúðina okkar hún var svo skítug. Frá því að við fluttum inn held ég sé búin að skrapa svona fimm tyggjóklessur af gólfinu en íbúðin er öll að lagast og er bara orðin nokkuð fín núna. Við verðum hvort sem er bara í henni til áramóta. Verðum að vera búnar að finna nýja íbúð fyrir fyrsta janúar. Bið að heilsa yfir og út Linda Björk. Myndin sýnir flotta baðherbergið okkar. Dýrleif ætlar að skrifa á morgun:)
Monday, 8 October 2007
Guatemala

Halló halló!!
Af okkur er bara allt gott að frétta nóg að gera í skólanum og svona. Klárum áfangann sem við erum í núna í enda mánaðarins. Við erum að hugsa um að fara á næstu önn í áfanga sem heitir tropical botany og það verður farið til Guatemala í 3 vikur í janúar að skoða hitabeltisplöntur. Spennandi!!
Ætlum að reyna að læra almennilega á þetta blogg. Siggi meðleigjandi okkar kom okkur af stað og nú verðum við örugglega óstöðvandi.
Vonandi eruði hress, ekkert stress og bless í bili.Kveðja frá Köben
Subscribe to:
Posts (Atom)