Nú erum við komnar í svokallað vetrarfrí. Við verðum samt ekki í miklu fríi þar sem við erum í stóru verkefni og þurfum að klára það í frívikunni. Það er mikið um veikindi í skólanum, annar hver maður er að snýta sér og hnerra. Við fáum okkur c vítamín og sólhatt á hverjum degi til að verjast þessarri pest. Vonandi tekst það því þetta er slæm tímasetning á veikindi.
Linda horfir mikið á náttúrulífs og dýraþætti í frítíma sínum og þá sérstaklega dýrasjúkrahúsþætti. Ég benti henni á að í skólanum okkar eru kenndar dýralækningar. Það er ekki víst að við förum í botany kúrsinn til Guatemala því það eru ekki nógu margir búnir að skrá sig. Við vonum það besta. Meðfylgjandi mynd er tekin í skógarferð í Drammen, Noregi. Við fórum þangað í námsferð um daginn.
Hef nú ekki mikið meira að segja... er á messenger, að skrifa blogg og vinna í verkefninu. Þarf að fara að einbeita mér að náminu eins og einhver mundi segja. :) Hafið það gott!
1 comment:
hæ stelpur! ;)skemmtilegt blogg hjá ykkur.það verður gaman að fylgjast með framhaldinu.ég vona að þið komist til guatemala örugglega geðveik upplifun.kveðja,sara sis dýrleifar
Post a Comment