Best að halda áfram að blogga á þetta gloppótta blogg. Um daginn komu Anna Rún, Karó og Guðný sem var í heimsókn hjá Karó og Önnu Rún. Ég, Dýrleif og stelpurnar fórum út að borða á Víetnamskan veitngastað Lá Lúa sem var bara mjög fínn og gaman að prófa eitthvað nýtt. Það þægilega við þennan veitingastað var að það tók okkur bara um 3 mínútur að koma okkur á staðinn en það má segja að hann sé í sama húsi og við búum í. Á myndinni sjást Anna Rún fremst Karó, Guðný, Hlynur og svo Siggi þarna í bakgrunninum.
Nú styttist í jólin og okkur hlakkar mjög mikið til að fara heim til Íslands um jólin að hitta fjölskyldur okkar og jú að fá góðan mat :)
Ég hef tekið eftir einu soldið fyndnu hérna í Danmörku en það er hvað danir eru ótrúlega duglegir að flytja dót á hjólum sínum. Í fyrsta lagi er ekki óalgengt að sjá fólk hjóla á hjólinu sínu haldandi í annað hjól en samt geta hjólað á fullri ferð án þess að detta á hausinn. Sá um daginn konu flytja örbylguofn í körfunni framan á hjólinu sínu, og í dag sá ég mann með mjög langa veiðistöng bara hjólandi um eins og ekkert væri sjálfsagðara jú og eitt annað fyndið með hjólafólk hérna, sá mann flytja jólatré á hjólinu sínu en jólatréð var jafnlangt og hjólið, maðurinn batt að bara stóra tréð við hjólið og hjólaði af stað.
bless bless í bili
jóló móló
Linda Björk