Við vorum að heiman alla helgina og gistum hjá Karó. Við fórum í þrítugs afmæli til Önnu Rúnar á laugardaginn þar sem var boðið upp á kökur og kaffi. Það var ágætis tilbreyting að fara frá borginni og í Jyllinge sveitina hennar Karó. Dýrleif fór meira að segja með Karó og krökkunum í jólaföndur á elliheimilinu í dag þar sem var föndrað, drukkið smá jólaglögg og borðaðar danskar eplaskífur (eplaskífur tengjast eplum ekki neitt humm... fyndið, samt voða góðar). En ég Linda Björk nennti ómögulega með á þessa ellismella skemmtun og var bara heima í rólegheitum. Skelli inn mynd tekna í afmælinu af Önnu Rún og Ásdísi Grétu.
Sunday, 25 November 2007
Sveitarferð og afmæli

Thursday, 22 November 2007
Dýrleif fótboltabulla :)

Halló halló
Við erum búnar að vera voða heilsusamlegar núna með því að sleppa að kaupa strætókort og labba í skólann og helst allt sem við þurfum að fara (gengur ekki alltaf) erum svona sirka 35 til 40 mínútur að labba í skólann eða það fer eftir því hvað við erum duglegar að fara á fætur :)
Dýrleif fór á Parken í gær á landsleik Danmörk-Ísland. Danir unnu Ísland 3-0, þrátt fyrir ósigur Íslendinga var víst mjög gaman á leiknum. Dýrleif fór á leikinn með Guðrúnu sem er með okkur í skólanum og kærasta hennar Valda skeggjaða. Guðrún var með myndavél og tók myndir, ég fór á blogg síðuna hennar og stal einni mynd. Á myndinni má sjá Dýrleifu og Valda stuðningsmenn með hatta, Sigga meðleigjanda og einhvern annan mann sem ég hef bara ekki hugmynd um hver er.
Danir voru auðvitað ánægðir með sigurinn eins og sjá mátti á forsíðu blaða í dag, þar sem sagt var frá að þeir hefðu unnið með 3 marka mun. Okkur gengur bara betur næst eigum við ekki bara að segja það :)
Sunday, 18 November 2007
Nóg að gera
halló halló nú er aldeilis langt síðan við skrifuðum síðast.... Það sem af okkur er að frétta núna er að við erum búnar með síðasta áfanga og erum byrjaðar í áfanga sem heitir tropical botany. Hann fjallar aðallega um regnskógaplöntur, og endar með 3 vikna ferð til Guatemala í mið Ameríku. Með okkur í áfanganum eru 2 íslendingar þau Hlynur og Guðrún en þau voru með okkur í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Hlynur var með okkur í umhverfisskipulagi en Guðrún var í búvísindum. Dagurinn í dag fór í að læra fyrir tímann á morgun með Hlyni. Tók mynd af honum á fullu við lærdóm :) Það sem við gerðum annað um helgina var að heimsækja Önnu Rún og Stefán á laugardagskvöld og við spiluðum fram á nótt.
Subscribe to:
Posts (Atom)